Samhentir leita að drífandi og lausnamiðuðum sérfræðingi í véladeild félagsins. Véladeild Samhentra vinnur að framleiðslu, uppsetningu, samþættingu og þróun véla- og tæknilausna tengdum sjálfvirknivæðingu, pökkunarlínum og iðnaðarlausnum fyrir iðnað og framleiðslu.
Leitað er að einstaklingi með góða tæknilega yfirsýn og áhuga á fjölbreyttum verkefnum, sem nýtur þess að vinna að hagnýtum lausnum í nánu samstarfi við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og tækifæri til að þróast faglega með deildinni.
Helstu verkefni
Tæknileg útfærsla, samsetning og uppsetning vélbúnaðarlausna
Forritun, hönnun stýringa og uppsetning véla og pökkunarlína
Greining og úrvinnsla tæknilegra áskorana hjá viðskiptavinum
Samvinna við söluteymi við mótun tæknilausna og tilboða
Samskipti við innlenda og erlenda birgja vegna tækni og búnaðar
Þátttaka í þróun, stöðlun og umbótum lausna innan véladeildar
Hæfniskröfur
Menntun eða reynsla á sviði rafeindavirkjunar, rafmagnstæknifræði, rafiðna, vélfræði eða sambærilegu tæknisviði
Reynsla af iðnaðarlausnum, vélum, sjálfvirknilausnum eða stýrikerfum mikill kostur
Reynsla eða þekking á forritun, t.d. PLC-stýringum, Python eða sambærilegum lausnum
Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
Vilji og áhugi á að læra á ný kerfi, búnað og tækni
Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
Góð samskiptahæfni og hæfni til að starfa í teymi
Samhentir eru stærsti umbúðaaðili á Íslandi og hafa um áratugaskeið byggt upp sterka stöðu á markaði með fagmennsku, gæði og áreiðanleika að leiðarljósi. Fyrirtækið leggur áherslu á tæknilega þróun, nýsköpun, gott samstarf og faglegt starfsumhverfi.