Sérfræðingur í viðskiptaþróun – Síminn

Við leitum að framsýnum og kraftmiklum aðila í viðskiptaþróun sem brennur fyrir nýsköpun og vexti. Sérfræðingur í viðskiptaþróun heyrir beint undir forstjóra og veitir starfið einstakt tækifæri til að taka þátt í vegferð Símans en félagið er að stíga inn í nýja framtíð með spennandi verkefnum og áskorunum sem munu móta stafræna þjónustu á Íslandi.

Hlutverk og ábyrgð

  • Þátttakandi í stefnumótun samstæðunnar um vöxt og þróun
  • Greining og úrvinnsla fjárfestinga- og viðskiptatækifæra
  • Stuðningur við rekstrar- og samþættingarverkefni innan samstæðu Símans
  • Vinnur náið með stjórnendum við að hámarka árangur og arðsemi

Hæfniskröfur

  • Viðeigandi háskólamenntun, t.d. á sviði fjármála eða verkfræði
  • Framúrskarandi greiningarhæfni, reynsla af kynningargerð og hæfni til að setja fram gögn og upplýsingar á skýran hátt
  • Góð þekking á fjármálum fyrirtækja, lestri og greiningu ársreikninga og gerð verðmatslíkana
  • Reynsla af viðskiptaþróun, stefnumótun og verkefnastjórnun
  • Reynsla úr fyrirtækjaráðgjöf er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Framsýni, frumkvæði og hæfni til að vinna í hröðu og krefjandi umhverfi

Síðan 1906 hefur Síminn tengt heimili og fyrirtæki á Íslandi við umheiminn. Við leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu byggða á fyrsta flokks tækni. Við byggjum á sterkri liðsheild og kunnum að meta jákvætt, árangursdrifið og lausnamiðað hugarfar. Síminn vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk og lögð er mikil áhersla á vellíðan, hvetjandi umhverfi, tækifæri til vaxtar, jafnrétti og fjölbreytileika.

Nánari upplýsingar

Sverrir Briem – sverrir@hagvangur.is

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 19.01.2026

Sérfræðingur í viðskiptaþróun – Síminn

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 19.01.2026