Kirkjubæjarskóli, samrekinn leik- og grunnskóli, óskar eftir að ráða sérkennara fyrir bæði skólastigin skólaárið 2025 -2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast kennslu, undirbúning og námsmat í samstarfi og samráði við aðra kennara og skólastjórnendur
Árganga- og teymiskennsla
Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, stjórnendur og fagfólk
Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
Að vinna við námsmat og ýmsar skýrslur
Hæfnikröfur
Leyfisbréf til kennslu
Reynsla af sérkennslu æskileg
Góð færni í teymisvinnu og samskiptum
Faglegur metnaður, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Stundvísi og samviskusemi
Góð tölvukunnátta og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
Góð íslenskukunnátta
Hreint sakavottorð
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2025. Um er að ræða fullt starf.
Nýlega voru skólastofnanirnar Kirkjubæjarskóli á Síðu og Heilsuleikskólinn Kæribær sameinaðar í einn samrekinn skóla. Þar eru gildin virðing, jákvæðni, samstaða og sjálfbærni höfð að leiðarljósi.
Kirkjubæjarklaustur er í Skaftárhreppi um 250 km austur af Reykjavík. Í sveitarfélaginu búa um 700 íbúar. Á Klaustri er taktur lífsins rólegri og möguleikar til útivistar í einstakri náttúrufegurð eru óþrjótandi.
Skaftárhreppur getur aðstoðað við leit á húsnæði á hagstæðum kjörum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.