Skrifstofustjóri – Vopnafjarðarhreppur

Tækifæri á Vopnafirði!

Vopnafjarðarhreppur auglýsir eftir kröftugum skrifstofustjóra sem vill hafa áhrif á rekstur og stefnu metnaðarfulls sveitarfélags.

Skrifstofustjóri hefur umsjón með fjármálum sveitarfélagsins. Skrifstofustjóri starfar í umboði sveitarstjóra og annast framkvæmd aðgerða í samræmi við samþykktir, lög og reglur, stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins hverju sinni. Skrifstofustjóri hefur umsjón með starfsemi skrifstofu sveitarfélagsins og fjármálum. Undir skrifstofustjóra heyra jafnframt öll verkefni á sviði atvinnu- og menningarmála.

Helstu verkefni

  • Umsjón á fjármálastjórn sveitarfélagsins
  • Gerð áætlana framkvæmd, þeirra og úrvinnsla, eftirfylgni og kostnaðareftirlit í samráði við sveitarstjóra
  • Vinnur að atvinnutengdum verkefnum
  • Ársreikningar og uppgjör
  • Hefur eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða
  • Lausafjárstýring og samskipti við lánastofnanir
  • Innleiðing og eftirfylgni með innra eftirliti
  • Þátttaka í stefnumótun og þróun stjórnsýslu
  • Kynningarmál og umsjón með vefsíðu sveitarfélagsins
  • Starfsmaður í menningar- og atvinnumálanefnd

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Fagleg þekking og reynsla af fjármálum og fjármálastjórnun
  • Reynsla af verkefnastjórnun, stefnumótun og innleiðingu og eftirfylgni breytinga
  • Þekking og/eða reynsla af stjórnsýslu er kostur
  • Mjög góð samskipta- og samvinnufærni
  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og drifkraftur
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvufærni

Næsti yfirmaður skrifstofustjóra er sveitarstjóri. Um fullt starf er að ræða. Laun eru samkvæmt kjarasamningum.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðningu er lokið.

Nánari upplýsingar

Björn Ingimarsson, starfandi sveitarstjóri – bjorni@vfh.is

Geirlaug Jóhannsdóttir – geirlaug@hagvangur.is

Austurland
Umsóknarfrestur: 10.11.2026

Skrifstofustjóri – Vopnafjarðarhreppur

Austurland
Umsóknarfrestur: 10.11.2026