Starf sveitarstjóra Strandabyggðar er laust til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að leiða þróun og daglegan rekstur sveitarfélagsins og takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Áhersla er lögð á áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins, eflingu atvinnulífs og góða þjónustu við íbúa.
Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum
Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur funda og upplýsingagjöf
Samskipti við íbúa, samstarfsaðila, stofnanir, fyrirtæki og samtök
Að gæta hagsmuna Strandabyggðar út á við og vera talsmaður sveitarfélagsins
Stefnumótun og mótun framtíðarsýnar í lykilmálaflokkum
Menntunar- og hæfniskröfur
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum
Áhugi á uppbyggingu samfélagsins og markaðssetningu
Þekking á opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum
Mjög góð tjáningarhæfni í ræðu og riti
Reynsla af stefnumótun og kynningar-/ímyndarmálum er kostur
Í Strandabyggð búa rúmlega 400 íbúar og er Hólmavík helsti þéttbýlisstaðurinn. Atvinnulíf er fjölbreytt og byggir m.a. á sjávarútvegi, ferðaþjónustu og þjónustustarfsemi. Í sveitarfélaginu er öflugt skólastarf og menningarlíf, sem og góð íþrótta- og tómstundaaðstaða. Strandabyggð býður upp á einstök lífsgæði í fallegu umhverfi þar sem stutt er á milli fólks og tækifæra.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni til að gegna starfinu.
Við val á umsækjanda verður horft til hæfni, reynslu og þeirrar sýnar sem best samræmist markmiðum sveitarfélagsins. Strandabyggð áskilur sér rétt til að birta lista yfir nöfn umsækjenda opinberlega að umsóknarfresti liðnum.