Sviðsstjóri fjölskyldusviðs – Vesturbyggð

Vest­ur­byggð auglýsir eftir dríf­andi einstak­lingi til að taka að sér fjölbreytt starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Við leitum að aðila með áhuga og reynslu af stjórnun og teym­is­starfi ásamt þekk­ingu á mála­flokkum sviðsins. Viðkom­andi þarf að búa yfir hæfni til að skipu­leggja og virkja samstarfs­menn til samráðs og samvinnu.

Sviðsstjóri er yfirmaður fjölskyldusviðs og ber ábyrgð á málaflokkum sviðsins, þ.e. félagsþjónustu, fræðslumálum ásamt íþrótta- og tómstundamálum, og tryggir heildstæða þjónustu við fjölskyldur. Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins sem heyrir undir bæjarstjóra.

Helstu verkefni

  • Fagleg stjórnun fjölskyldusviðs
  • Ábyrgð á fjárhagsáætlun, fjárreiðum og rekstri stofnana sviðsins
  • Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks sviðsins
  • Umsjón með starfsemi fjölskylduráðs og öldungaráðs
  • Ábyrgð á heildstæðri þjónustu við fjölskyldur á sviði félags-, skóla-, íþrótta- og tómstundamála
  • Ábyrgð á þátttöku Vesturbyggðar í svæðisbundnu samstarfi um barnavernd og málefni fatlaðs fólks
  • Yfirsýn og samhæfing sérfræðiþjónustu þvert á málaflokka
  • Frumkvæði að aðgerðum sem styrkja samfélagið

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
  • Reynsla af stjórnun, rekstri, stefnumótun og mannauðsmálum
  • Þekking á málaflokkum fjölskyldusviðs og opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Leiðtogahæfni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Vest­ur­byggð er á sunn­an­verðum Vest­fjörðum og saman­stendur af þremur þétt­býlis­kjörnum, Patreks­firði, Tálknafirði og Bíldudal og auk þess sveitir þar í kring. Svæðið einkennist af einstakri náttúrufegurð, öflugu atvinnulífi, fjölbreyttri þjónustu og góðu mannlífi. Í sveitarfélaginu er sterk innviða- og fjölskylduþjónusta, m.a. leikskólar, íþróttastarf og öflugt æskulýðsstarf. Vesturbyggð býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar, félagslífs og afþreyingar og tekur vel á móti nýjum íbúum!

Umsóknum skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá, auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Nánari upplýsingar veita

Geirlaug Jóhannsdóttir – geirlaug@hagvangur.is

Stefanía Hildur Ásmundsdóttir – stefania@hagvangur.is

Vesturbyggð
Umsóknarfrestur: 19.05.2026

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs – Vesturbyggð

Vesturbyggð
Umsóknarfrestur: 19.05.2026