Við leitum að öflugum aðila fyrir tækniþjónustu og verkstæði Fastus í Reykjavík en fyrirtækið selur tækjabúnað til veitingastaða, hótela og stóreldhúsa sem og sérhæfðan tækjabúnað til heilbrigðisgeirans.
Meðal helstu verkefna
Þjónusta og ráðgjöf varðandi fjölbreyttan tækjabúnað
Tækniviðgerðir og reglubundið viðhald
Greiningar og lausn tæknilegra vandamála
Uppsetningar á tækjabúnaði
Þjónustuheimsóknir til viðskiptavina, innan höfuðborgarsvæðisins og nágrenni. Starfinu fylgja einnig regluleg ferðalög utan höfuðborgarsvæðisins
Við leitum að jákvæðum, lausnamiðuðum og skipulögðum aðilum með reynslu af sambærilegum verkefnum og menntun sem nýst getur í starfi, s.s. rafvirkjun, rafeindavirkjun, vélstjórn eða sambærilegt fagnám.
Ef þú hefur gaman af lausnamiðaðri vinnu og tæknilegum áskorunum, þá gæti þetta verið spennandi tækifæri fyrir þig.
Hjá Fastus starfar fjölbreyttur og fjölhæfur hópur sérfræðinga sem leitast við að finna viðeigandi lausnir fyrir sérhvern viðskiptavin félagsins. Nánari upplýsingar á fastus.is
Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna.