GEA Iceland ehf óskar eftir að ráða sjálfstæðan og kraftmikinn einstakling til starfa. Starfið felst í þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins. Leitað er eftir aðila sem er með góða þjónustulund, búsettur á höfuðborgarsvæðinu og er reiðubúinn að þjónusta fyrirtæki og einstaklinga víðs vegar um landið en einnig utan landsteinanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónusta og viðgerðir á skilvindum
Framkvæmd á reglulegu viðhaldi skilvinda
Viðbrögð við útköllum
Kennsla og þjálfun viðskiptavina og starfsfólks þeirra
Sækja þau námskeið sem fyrirtækið krefur
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfnikröfur
Menntun sem nýtist í starfi, s.s. vélstjóramenntun, vélfræðingur eða sambærilegt
Starfsreynsla til sjós er kostur
Reynsla af flóknu umhverfi vélbúnaðar
Þekking á rafmagnsfræðum og iðntölvum
Þekking og reynsla af skilvindum er mikill kostur
Sjálfstæð vinnubrögð, sterk þjónustulund og góð samskiptahæfni
Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta
Kunnátta á öðru Norðurlandamáli mikill kostur
Góð tölvukunnátta
Í boði eru samkeppnishæf laun, möguleiki á framþróun í starfi, vinnutengd fríðindi og gott starfsumhverfi.
GEA Iceland ehf var stofnað árið 1998. Þá sem Westfalia Separator en móðurfélagið var stofnað í Þýskalandi árið 1893. Starfsemi fyrirtækisins fer fram í flestum löndum heims og er heildarfjöldi starfsmanna um 20 þúsund. Innan þeirrar deildar fyrirtækisins sem einblínir á sölu og þjónustu á skilvindum starfa um 4 þúsund manns. Sem stendur eru tveir starfsmenn á Íslandi, er hér með leitað eftir þeim þriðja. GEA Iceland ehf þjónustar fyrst og fremst fyrirtæki og einstaklinga á Íslandi og Færeyjum en tekur einnig að sér tilfallandi verkefni á hinum Norðurlöndunum.