Verkefnastjóri nærsamfélags og náttúru – Landsvirkjun
Viltu hjálpa okkur að vera góður granni?
Við hjá Landsvirkjun leitumst við að eiga sem best samskipti við nágranna okkar nær og fjær. Því leitum við að verkefnisstjóra til að ganga til liðs við okkur á sviði Samfélags og umhverfis sem tryggir góð og jákvæð samskipti við nágranna og hagsmunaaðila. Við leiðum sameiginlega vegferð fyrirtækisins að grænum rekstri, kolefnishlutleysi, samfélagslega ábyrgri starfsemi og virku samstarfi og samtali í nærsamfélögum. Starfið býður upp á tækifæri til að starfa í líflegu og hvetjandi vinnuumhverfi og að hafa jákvæð áhrif á samfélagið.
Helstu verkefni
samskipti við hagsmunaaðila í nærsamfélagi aflstöðva
gerð og eftirfylgni samskiptaáætlana
undirbúningur og framkvæmd samfélagsverkefna
styðja við þróun, innleiðingu og eftirfylgni græns reksturs
miðlun verkefna og árangurs innan og utan fyrirtækis
Hæfni
háskólamenntun sem nýtist í starfi
framúrskarandi samskiptaeiginleikar og jákvætt viðhorf
þekking og reynsla af samskiptum við fjölbreyttan hóp hagsmuaaðila
frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
þekking eða reynsla af umhverfis- og/eða orkumálum er kostur
Starfsstöð er á Suðurlandi, á Þjórsársvæði og Sogssvæði.
Nánari upplýsingar
Inga S. Arnardóttir – inga@hagvangur.is
Suðurland
Umsóknarfrestur: 25.05.2025
Verkefnastjóri nærsamfélags og náttúru – Landsvirkjun