Icepharma leitar að söludrifnum og metnaðarfullum liðsmanni í spennandi sölu- og markaðsstarf hjá Heilbrigðislausnum Icepharma
Helstu verkefni og ábyrgð
Sala og markaðssetning á lækningatækjum og hjúkrunarvörum
Kynningar, fræðsla og eftirfylgni
Myndun viðskiptatengsla og heimsóknir til viðskiptavina og birgja
Þjónusta og ráðgjöf við viðskiptavini
Þátttaka í verðfyrirspurnum og útboðum
Fundir og ráðstefnur innanlands og erlendis
Þátttaka í viðskiptaþróun og greiningu vaxtartækifæra
Aðkoma að áætlanagerð og eftirfylgd áætlana
Hæfnikröfur
Menntun á sviði heilbrigðisvísinda eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af sölu- og markaðsstarfi á heilbrigðisvörum er mikill kostur
Áhugi á tæknilausnum ásamt góðu tæknilæsi
Metnaður, drifkraftur og frumkvæði
Jákvæðni og framúrskarandi færni í tengslamyndun og mannlegum samskiptum
Góð skipulagshæfni ásamt faglegum og sjálfstæðum vinnubrögðum
Mjög gott vald á íslensku og ensku
Vinnustaðurinn
Mötuneyti í hæsta gæðaflokki
Sérkjör á heilsuvörum, vítamínum og íþróttafatnaði
Áhersla er lögð á fræðslu starfsmanna
Skýr starfsmannastefna um jákvæð samskipti og vinnustaðamenningu
Fjölbreytt úrval af vítamínum og steinefnum á vinnustaðnum
Líkamsræktarstyrkir
Öflugt starfsmannafélag og sjálfsprottnir starfsmannahópar fyrir ýmis áhugamál
Styrkir úr heilsusjóði Ósa sem hvetur til heilsueflingar starfsmannahópa
Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Icepharma er í fararbroddi á íslenskum lyfja-, heilbrigðis- og neytendamarkaði. Kjarninn í starfsemi okkar er að auka lífsgæði með öflugu framboði af heilsueflandi vörum. Hjá fyrirtækinu starfa um 90 manns við sölu og markaðssetningu, sérfræðiráðgjöf og þjónustu. Við leggjum áherslu á metnað, frumkvæði, gleði og svigrúm starfsfólks til að vaxa og þróast í starfi.
Icepharma er hluti af samstæðunni Ósar – lífæð heilbrigðis hf., þar sem samtals starfa um 220 manns. Hjá Heilbrigðislausnum starfa um 20 manns í frábærri liðsheild.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og í samræmi við lög um meðferð persónuupplýsinga.